Heilhveitikorn

Móðir Jörð

Heilhveitikorn

1 kg

840kr.

per kg

Uppselt

Heilhveitikorn er heilt korn ætlað þeim sem vilja mala sitt korn sjálfir.  Einnig má sjóða grjónin og bæta við brauðdeig.  Tilvalið í súrdeigsbakstur. Heilhveiti Móður Jarðar óx í Vallanesi við ein bestu skilyrði sem skapast hafa á Austurlandi til kornræktar. Sumarið 2021 var sólríkt og hlýtt sem skilaði sér í góðum kornþroska, bragði og gæðum.

Innihald

Heilhveiti, heilt korn. Upprunnið í Vallanesi.  Lífrænt ræktað.

Í lífrænni ræktun eru plönturnar ræktaðar í jarðvegsvistkerfi. Jarðvegurinn er ræktaður upp með lífrænum áburðarefnum og án eiturefna sem skilar heilbrigðari plöntum sem innihalda meira af næringu, t.d. fjölbreyttari flóru vítamína og steinefna. Þessi vara ber vottun um lífræna framleiðslu sem þýðir að hún inniheldur einungis hráefni af náttúrulegum uppruna. Í lífrænni ræktun eru erfðabreyttar lífverur óheimilar.

Free shipping over £50.
Money back guarantee
IS