Perlubygg með púrru og geitaskyri

keyboard_arrow_leftUppskriftir

Perlubygg með púrru og geitaskyri

Ljúffeng uppskrift úr Gestgjafanum

4 dl Perlubygg frá Móður Jörð 1 ½ líter gott kjúklinga- eða grænmetissoð ½ laukur, saxaður 2 söxuð hvítlauksrif Repjuolía til steikingar 1 dl hvítvín 3 -4 nettir púrrulaukar, þ.e. laufin notuð og söxuð smátt Hálf krukka af geitaskyri frá Geitagott Parmesan ostur Smjör Salt og pipar Ferskt basil
Skolið byggið og látið renna vel af því.  Steikið laukinn í olíunni við góðan hita, þó án þess að laukurinn brenni.  Bætið hvítlauknum saman við og hrærið vel.  Bætið bygginu saman við og ristið vel í olíublöndunni.  Hellið því næst hvítvíninu út í og látið grjónin sjúga það í sig.  Lækkið hitann dálítið, hrærið vel í, bætið síðan soðinu saman við grjónin í skömmtum og hrærið, þetta ferli tekur ca 20 mínútur.  Bætið púrrunni saman við og sjóðið með í 5 mínútur til viðbótar, bætið við soði ef þarf.  Geitaskyri blandað saman ásamt klípu af smjöri. Hitinn tekinn af, því næst er parmesan ostur rifinn saman við, hrært vel og lokið sett á, látið hvíla í 1-2 mínútur.  Hrærið vel og malið svartan pipar saman við, lokið sett á og látið hvíla augnablik þar til rétturinn er borinn fram. Smakkið til með salti og pipar og bætið við fersku basil eftir smekk.
Free shipping over £50.
Money back guarantee
IS