Sjóðið 3 dl af Bankabyggi eða Perlubyggi skv leiðbeiningum á pakka, síið vatnið af og takið til hliðar
Steikið fiskinn upp úr smjöri, veltið bitunum fyrst upp úr byggmjöli ásamt salti og pipar. Steikið í nokkrar mínútur á hvorri hlið, kreistið safa úr sítrónu yfir í lokin.
Sjóðið 3 dl af Bankabyggi eða Perlubyggi skv leiðbeiningum á pakka, síið vatnið af og takið til hliðar.
Olía til steikingar
½ laukur
2 hvítlauksrif, söxuð
3-4 flök af niðursoðnum ansjósum, söxuð
1 dós niðursoðnir ítalskir tómatar, eða ferskir gæðatómatar
Örlítið chilliduft eða flögur ( má sleppa)
2 msk capers
Svartar ólífur s.s. taggiascha ca ½ dl eða að smekk
Hitið olíu á pönnu og mýkið laukinn í henni, því næst hvítlaukinn á miðlungs hita. Bætið söxuðum ansjósunum saman við og látið þær leysast vel upp. Því næst chilli duft ef menn vilja hafa það spicy. Næst fara tómatarnir, maukið vel saman við, ljúkið sósunni með söxuðu capers og svörtum ólífum. Blandið saman við byggið, hrærið og skammtið á diska. Leggið steikt fiskstykkin ofan á.
Add this recipies ingredients to your basket.
Add All Ingredientsshopping_basket