Gjafapakki með 3 nýjustu vörum okkar, pakkað inní sellófan og skreytt með náttúrubandi. Koss á kinn (andlitsolía), Ástarilmur (líkamsolía) og Líkamskrúbb (húðhreinsir). Allar þessar vörur eru byggðar á repjuolíunni sem ræktuð er í Vallanesi. Auk þess er notast m.a. við ilmkjarnaolíur úr íslenskri stafafuru, auk fleiri lífrænna ilmkjarnaolía. Sjá nánari upplýsingar um hverja og eina vöru hér í vefverslun okkar.
Gjafapakki olíur
3x100ml
7.990kr.
per kg
In stock
Innihald
Koss á kinn (andlitsolía) inniheldur: Íslensk kaldpressuð repjuolía, íslensk stafafura. 100% lífrænt.
Ástarilmur inniheldur: Íslensk kaldpressuð repjuolía, íslensk stafafura. 100% lífrænt.
Líkamsskrúbb inniheldur: Skel af repju, repjuolía, ilmkjarnaolíur úr lavander og júkalyptus. 100% lífrænt.
Í lífrænni ræktun eru plönturnar ræktaðar í jarðvegsvistkerfi. Jarðvegurinn er ræktaður upp með lífrænum áburðarefnum og án eiturefna sem skilar heilbrigðari plöntum sem innihalda meira af næringu, t.d. fjölbreyttari flóru vítamína og steinefna. Þessi vara ber vottun um lífræna framleiðslu sem þýðir að hún inniheldur einungis hráefni af náttúrulegum uppruna. Í lífrænni ræktun eru erfðabreyttar lífverur óheimilar.
Perlubygg með púrru og geitaskyri
Tími
Hæfni
1/5
Kaloríur
Ljúffeng uppskrift úr Gestgjafanum
SkoðaBopp smásnittur
Tími
Hæfni
1/5
Kaloríur
Bopp er frábær grunnur að smásnittum og er um að gera að láta.
Skoða