Móðir Jörð ehf í Vallanesi á Fljótsdalshéraði er fyrirtæki í lífrænni ræktun og matvælaframleiðslu. Við leggjum stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðum tilbúnar hollustu- og sælkeravörur. Grænmetisveitingastaður og gistihús er starfrækt frá maí - september. Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur.
LÍFRÆN RÆKTUN
Í Vallanesi fer fram lífræn ræktun á korni og grænmeti, fullvinnsla og framleiðsla tilbúinna matvæla sem grundvallast á hráefni sem ræktað er á staðnum. Einnig er umfangsmikil skógrækt en á jörðinni hefur verið plantað fjölda trjáa og skjólbelta. Markmið framleiðslunnar er að rækta og nýta hráefni úr nánasta umhverfi staðarins, þróa bragð og rétti sem grundvallast á hráefnum úr jurtaríkinu. Móðir Jörð er samnefnari fyrir hollustu og sælkeralínu okkar sem byggð er á íslensku korni, grænmeti og jurtum.
Hreinleiki er lykilatriði í ræktun og framleiðslu okkar, ekki er notast við tilbúinn áburð eða eiturefni og matvörur okkar eru lausar við tilbúin hjálparefni, gervi- og litarefni enda er ræktun og framleiðsla Móður Jarðar vottuð lífræn. Manneldismarkmið eru okkur hugleikin og við leggjum áherslu á kynningu á notkun byggs til manneldis og leggjum síaukna áherslu á vinnslu þess og þróun rétta þar sem þetta úrvals heilkorn kemur við sögu.
Vörur okkar fást í matvöruverslunum um allt land undir vörumerkinu Móðir Jörð. Grænmetið okkar er útiræktað og árstíðabundið og þar sérhæfum við okkur í fjölbreyttum tegundum fyrir veitingahús og heilsuverslanir. Allar okkar vörur bera Evrópulaufið, alþjóðlegt vottunarmerki um lífræna ræktun og framleiðslu.
LÍFRÆNAR VÖRUR
Vörur okkar fást í öllum helstu matvöruverslunum.
Helstu vöruflokkar eru þessir:
– Korn (bygg og heilhveiti)
– Ferskt grænmeti
– Repja – matarolía
– Hrökkbrauð
– Þurrefnablöndur (grunnur að uppskriftum til baksturs og morgunverðar)
– Sultað grænmeti (chutney)
– Sultur og ber
– Sýrt grænmeti (súrkál)
– Grænmetisréttir (frosin grænmetisbuff)
– Ferskt pestó
– Jurtablöndur og te
– Nuddolíur
EYGLÓ BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR
Eygló Björk Ólafsdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og gekk til liðs við Móður Jörð árið 2010. Hún hefur áralanga reynslu af matvörumarkaði hér heima og erlendis. Eygló er einn af stofnendum Slow Food hreyfingarinnar á Íslandi og er formaður VOR sem er félag lífrænna framleiðenda. Eygló er formaður fagráðs í lífrænum landbúnaði frá árinu 2019.
EYMUNDUR MAGNÚSSON
Eymundur Magnússon er búfræðingur að mennt og útskrifaðist frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri árið 1973. Að loknu námi starfaði hann erlendis við búrekstur í Bretlandi, Svíþjóð og Noregi. Eymundur hóf búskap í Vallanesi árið 1979 með fjölskyldu sinni og lagði fyrst stund á kúabúskap og síðar grænmetis- og kornrækt til manneldis frá árinu 1985.
VIÐURKENNINGAR
Starfsemi Móður Jarðar í Vallanesi hefur hlotið ýmsa viðurkenningu í gegnum tíðina:
– Landbúnaðarverðlaunin árið 2004 fyrir notkun á skjólbeltum og skógrækt í landbúnaði
– Heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu veitt Eymundi fyrir frumkvæði á sviði búskaparhátta og matvælamenningar árið 2011.
– Eymundur var árið 2012 tilnefndur til Umhverfisverðlauna Norðurlandanna m.a. fyrir að leggja “áherslu á mannlegan fjölbreytileika: ár hvert starfa hjá honum ungir sjálfboðaliðar og mynda þannig alþjóðlegan félagsskap sem er trúr jörðinni og lærir að sýna umhverfi sínu virðingu.“
– Móðir Jörð hlaut Fjöreggið árið 2015 fyrir lofsvert framtak á sviði matvæla og næringar. Verðlaunin veita Matvæla- og næringarfræðingafélag Íslands í samvinnu við Samtök iðnaðarins.
Árið 2019 hlaut Eymundur og Móðir Jörð viðurkenningu við Matarvísindaháskólann í Pollenzo á Ítalíu (University of Gastronomic Sciences – UNIGS). Viðurkenninguna hlaut Eymundur fyrir það framtak að hafa plantað skógi og skjólbeltum og þannig skapað skilyrði til lífrænnar ræktunar í sínu heimalandi. Auk þess fyrir að hafa með vinnu sinni stuðlað að aukinni sjálfbærni í landbúnaði, verndun umhverfis og líffræðilegri fjölbreytni.