Repjuolía 250ml glerfl

Móðir Jörð

Repjuolía 250ml glerfl

250ml

SKU: 40-091.

1.050kr.

Repjuolía er holl og hentug til matargerðar, af öllum matarolíum hefur hún lægst hlutfall af mettaðri fitu. Hátt hlutfall af einómettuðum fitusýrum og 3svar sinnum meira af fjölómettuðum fitusýrum en ólífuolía. Jómfrúarolía sem hentar best að nota ferska í ýmsa matargerð. Hún er einnig mjög hitaþolin og hentar því líka vel til að steikja úr og til baksturs. 250 ml.

Innihaldsefni

Kaldpressuð íslensk repjuolía

Í lífrænni ræktun eru plönturnar ræktaðar í jarðvegsvistkerfi. Jarðvegurinn er ræktaður upp með lífrænum áburðarefnum og án eiturefna sem skilar heilbrigðari plöntum sem innihalda meira af næringu, t.d. fjölbreyttari flóru vítamína og steinefna. Þessi vara ber vottun um lífræna framleiðslu sem þýðir að hún inniheldur einungis hráefni af náttúrulegum uppruna. Í lífrænni ræktun eru erfðabreyttar lífverur óheimilar.

Free shipping over £50.
Money back guarantee
IS