Móðir Jörð í Vallanesi leitar að starfsmanni til að starfa við jarðrækt og lífræna akuryrkju.  Um árstíðabundið starf er að ræða yfir ræktunartímabil frá apríl út október.  Móðir Jörð ræktar korn;  bygg, hveiti og repju á 70 ha lands sem og fjölbreyttar tegundir af grænmeti í útiræktun.  Viðkomandi þarf að hafa réttindi á vinnuvélar, reynslu við notkun landbúnaðartækja, reynsla af ræktun matjurta er kostur.   Starfið gæti einnig hentað fyrir nema í verk- eða starfsnámi.  Ráðningartímabil er 6 mánuðir.

Fyrirtækið leggur stund á lífræna ræktun á korni og framleiðslu matvara úr jurtaríkinu sem fram fer samkvæmt alþjóðlegri vottun um lífræna framleiðslu.  Framleiðslan er sérhæfð, grundvölluð á staðbundnum hráefnum og vörumerkið er með dreifingu um allt land.

Við leitum að starfsmanni með áhuga á lífrænni ræktun, metnað fyrir heilbrigði umhverfis og getu til að taka að sér fjölbreytt verkefni.   Menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi.  Vinnufyrirkomulag og kjör eru samkomulagsatriði, en Móðir Jörð býður fjölbreytt störf í fallegu umhverfi og starfsemin hefur sjálfbærni að leiðarljósi.  Umsóknir sendist í tölvupósti til info@vallanes.is.  Frekari upplýsingar um starfsemina er að finna á www.modirjord.is

English:

Móðir Jörð organic farm in Vallanes is looking to hire a person for fieldwork and other agriculture work. The job is seasonal during the growing season from April to October.  Móðir Jörð (Mother Earth) grows cereals, barley, wheat and rapeseed and vegetables in 70 ha of cultivated land which is all certified organic.

We are looking for a worker with a license to operate agriculture machinery and experience in the field.  The job could also be suitable for internship but requires presence of 5-6 months.

Móðir Jörð is known for organic farming and food processing as well as sustainable tourism.  The farm produces variety of food products based on crops grown at the farm.  Branded products of Móðir Jörð can be found in shops and supermarkets across the country

We search for employees with interest and ambition for healthy environment and organic farming and flexibility to take on various tasks related to the farms mission. Education and/or experience suitable for the job.  Work period and salary is negotiable, the work is in an  international and natural work environment where sustainability is the goal.  Application to be sent by email to info@vallanes.is.  For further information about the farm see www.modirjord.is