Móðir Jörð í Vallanesi leitar að starfsfólki, um er að ræða fjölbreytt störf í fallegu umhverfi og alþjóðlegu starfsumhverfi þar sem ræktun, fullvinnsla og ferðaþjónusta tvinnast saman. Möguleiki er á húsnæði á staðnum. Umsóknir skal senda á info@vallanes.is.
Starfsfólk í vinnslu og pökkun;
Við leitum að starfsfólki í pökkun, almenna matvælaframleiðslu og þrif. Við leitum að ábyrgu og vandvirku fólki með metnað fyrir gæðum og góðri vöru, sem á auðvelt með að vinna með öðrum. Hlutastörf koma einnig til greina. Ensku kunnátta er æskileg.
Störf við matseld og þjónustu á veitingastað
Við leitum að starfsfólki til að annast matseld fyrir kaffihús og veitingastaðinn Asparhúsið í Vallanesi í sumar. Í Asparhúsinu í Vallanesi er rekinn grænmetisveitingastaður sem byggir á afurðum sem ræktaðar eru á staðnum og fjöldi ferðamanna heimsækir á hverju ári. Menntun og/eða reynsla á sviði matreiðslu er skilyrði og/eða reynsla af grænmetisfæði. Viðkomandi þarf að hafa gæði og heilsu í fyrirrúmi, sem og þjónustulund og góða enskukunnátta.
Við leitum einnig að starfsfólki til að veita þjónustu í sal og í verslun okkar í Vallanesi. Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði og starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg. Gerð er krafa um góða enskukunnáttu.
Starf í jarðrækt
Við leitum að starfsmanni í árstíðabundið verkefni sem tengist lífrænni akuryrkju, korn- og grænmetisræktun. Viðkomandi þarf að hafa réttindi á vinnuvélar og reynslu við notkun landbúnaðarvéla. Tímabil er apríl – október. Starfið gæti einnig hentað fyrir nema í verk- eða starfsnámi.
Starf við grænmetisræktun
Við leitum að starfsmanni í ræktun og umsýslu með fjölbreytt úrval af grænmeti og jurta sem ræktað er í lífrænni ræktun okkar í gróðurhúsum og í útiræktun. Viðkomandi þarf að hafa ástríðu fyrir ræktun og umhverfi sem og hæfileika til að vinna með fólki. Starfið er fjölbreytt og felur í sér samskipti við viðskiptavini og verkefni tengd vörustýringu, sölumálum o.s.frv.
Ferilskrá ásamt umsókn sendist á info@vallanes.is fyrir 10. febrúar.
Fylgist með Móður Jörð á Facbook og Instagram.