Páskabygg

Skamtar: Tími Hæfni
  • 200 g Bankabygg eða Perlubygg
  • 200 g gulrætur
  • ½  ltr. kjötkraftur
  • ½ stk. laukur
  • 1 stk. hvítlauksgeiri
  • Fersk steinselja
  • 1 msk malað turmeric
  • ½  glas þurrt hvítvín
  • 2 msk repjuolía
  • 2 msk fita s.s. lardo, andafita eða beikonfita
  • 20 g smjör
  • salt og  pipar
Skolið byggið vel og látið vatnið renna vel af.  Skolið gulræturnar og skerið í þykka bita. Saxið lauk smátt, hvítlauk og steinseljuna.  Hitið olíuna og fituna í potti eða djúpri pönnu,  mýkið laukinn í nokkra stund og brúnið grænmetið.  Bætið hvítlauknum við sem og bygginu, steikið í nokkrar mínútur. Hellið víni saman við og látið gufa upp. Smakkið til með salti. Hellið tveimur ausum af sjóðheitum kraftinum út í og látið gufa upp á milli þess sem vökva er bætt í, hrærið vel í af og til.  Þegar byggið hefur kraumað í 10 mín. bætið kryddjurtum saman við og sjóðið áfram í um 5 mínútur. Þegar byggið er soðið, bætið þá smjörklípu út á pönnu og blandið vel saman. Kryddið með ferskum pipar rétt áður en rétturinn er borinn fram og skreytið ferskri steinselju. Tilvalið er að setja annað hráefni ofan á byggið áður en rétturinn er lagður á veisluborðið.
Add this recipies ingredients to your basket. Add All Ingredientsshopping_basket
Free shipping over £50.
Money back guarantee
IS