Grænkálssalat með bláberjavinaigrette

keyboard_arrow_leftUppskriftir

Grænkálssalat með bláberjavinaigrette

Skamtar: Tími Hæfni

Grænkálsalat Asparhússins hefur notið mikilla vinsælda, það er lokkandi og örlítið sætt. Gott er að gera þetta salat a.m.k. klukkustund fyrir mat.

  • Lífrænt ræktað íslenskt grænkál, 1 búnt
  • Ristuð graskersfræ ½ dl
  • Bláberjavinaigrette Móður Jarðar, eftir smekk
  • Bláberjavinaigrette (Blandið saman í krukku og hristið vel saman)
  • 1dl repjolía frá Móður Jörð
  • 1 dl bláberjasulta eða Blásól frá Móður Jörð
  • 1 dl hvítvinsedik
  • Safi úr hálfri sítrónu, lífrænni að sjálfsögðu 
  • ½ msk íslenskt sjávarsalt (við notum Saltverk)
  • Slatti af fersku timian (eða 1msk af þurrkuðu)
  • Söxuð steinselja
  • 1 hvítlauksrif, saxað eða rifið
  • ½ rauðlaukur skorinn í fínar sneiðar
Ristið graslauksfræin á pönnu og kælið. Skolið kálið, rífið stönglinn af og skerið kálið í strimla. Setjið í stóra skál og hellið dressingunni yfir salatið og veltið kálinu upp úr dressingunni þannig að það sé vel blautt. Þessi skammtur ætti að duga fyrir 2-3 búnt. Bætið ristuðum fræjunum saman við. Látið salatið standa í a.m.k. klukkutíma áður en það er borið fram.
Add this recipies ingredients to your basket. Add All Ingredientsshopping_basket
Free shipping over £50.
Money back guarantee
IS