Móðir Jörð í Vallanesi leitar að starfsfólki fyrir komandi ræktunartímabil. Störfin eru fjölbreytt og spanna allt ferlið, frá lífrænni ræktun til ferðaþjónustu sem á henni byggir. Um er að ræða fjölbreytt störf í skemmtilegu alþjóðlegu starfsumhverfi þar sem ræktun, fullvinnsla og ferðaþjónusta tvinnast saman á ræktunarstað okkar í Vallanesi á Fljótsdalshéraði. Móðir Jörð er sérhæft fyrirtæki í lífrænni ræktun og matvælaframleiðslu sem þjónar veitingahúsum og verslunum um land allt. Möguleiki er á húsnæði á staðnum. Umsóknir skal senda á info@vallanes.is.
Starfsfólk í vinnslu og pökkun
Við leitum að starfsfólki í pökkun, almenna matvælaframleiðslu og þrif. Við leitum að ábyrgu og vandvirku fólki með metnað fyrir gæðum og góðri vöru sem á auðvelt með að vinna með öðrum. Við leitum að starfsmanni í framtíðarstarf en hlutastörf koma einnig til greina. Við leitum m.a. að starfsmanni sem getur getur hafið störf sem fyrst. Ensku kunnátta er æskileg.
Starfsmaður í jarðrækt
Við leitum að starfsmanni í árstíðabundið verkefni sem tengist lífrænni akuryrkju, korn- og grænmetisræktun. Viðkomandi þarf að hafa réttindi á vinnuvélar og helst reynslu af notkun landbúnaðarvéla. Tímabil er apríl – október. Starfið gæti einnig hentað fyrir nema í verk- eða starfsnámi.
Störf við matseld og þjónustu á veitingastað
Við leitum að starfsfólki til að annast matseld fyrir kaffihús og veitingastaðinn Asparhúsið í Vallanesi í sumar. Í Asparhúsinu í Vallanesi er rekinn grænmetisveitingastaður frá apríl – október sem notar afurðir af staðnum og fjöldi ferðamanna heimsækir á hverju ári. Menntun og/eða reynsla á sviði matreiðslu er kostur. Áhugi á heilsu og góðum mat er skilyrði, sem og þjónustulund og góð enskukunnátta.
Við leitum einnig að starfsfólki til að veita þjónustu í sal og í verslun okkar í Asparhúsinu. Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði og einhver starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg. Gerð er krafa um góða enskukunnáttu.
Grænmetisræktun
Við leitum að starfsmanni í ræktun og umsýslu með fjölbreytt úrval af grænmeti og jurta sem ræktað er í lífrænni ræktun okkar í gróðurhúsum og útiræktun. Viðkomandi þarf að hafa græna fingur og ástríðu fyrir viðfangsefninu og hafa hæfileika til að vinna með fólki. Starfið er fjölbreytt og felur í sér samskipti við viðskiptavini og verkefni tengd vörustýringu, sölumálum og fleiri tilfallandi verkefni. Um er að ræða tímabundið starf frá maí til október.