Móðir Jörð kynnir nýjar afurðir og afrakstur af kornræktinni í Vallanesi. Nýverið fékk félagið styrk úr Matvælasjóði til að kanna hvort hægt væri að malta íslenskt korn og framleiða svo kallað byggmalt, sem er grundvallarhráefni til bjórgerðar. Verkefnið snerist annars vegar um möltun á korninu í Vallanesi og hins vegar hvort hægt væri að brugga bjór alfarið úr því maltaða korni.
Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi hellti sér út í það verkefni að ná tökum á möltun, ýmsar prófanir voru gerðar sem skiluðu að byggmalti en einnig náðist að malta hveiti úr sama árgangi, en árið 2025 var afbragðsgott kornræktar ár.
Móðir Jörð hefur í framhaldi af þessu verkefni komið með á markað þrjár gerðir af bjór, IPA, Lager og Hveitibjór sem innihelda að öllu leyti íslenskt korn. Vörulínan er kennd við upprunastaðinn, Vallanes á Fljótsdalshéraði og hönnun umbúða endurspeglar myndefni af ökrum okkar og vörurnar kenndar við býlið enda uppruni kornsins ótvíræður. Þessi vörulína er auk þessa eina vottaða lífræna íslenska vörulínan í bjór sem fáanleg er á markaði um þessar mundir.
Hingað til hefur allt byggmalt til bjórgerðar á Íslandi verið innflutt. Árið 2025 var einkar gott kornræktarár og ætla má að íslenskir bændur geti framleitt byggmalt úr korni sem hefur góða spírunareiginleika.
Þess má geta að Móðir Jörð hefur heildsöluleyfi til dreifingar áfengra drykkja og býður auk þess bjórinn til sölu á veitingastað sínum í Vallanesi. Fyrirspurnir má senda á info@vallanes.is.
6. November, 2026