Rauðrófubuff
Tilbúin grænmetisbuff
Tilbúin grænmetisbuff til hitunar, frystivara. Matreiðið Rauðrófubuffin beint úr frosti. Steikið á meðalheitri pönnu í góðri olíu s.s. repjuolíu Móður Jarðar í u.þ.b. 10 mín. Einnig má grilla þau eða baka í ofni við 220°C í um 15. mín. Buffin eru tilbúin þegar þau eru heit í gegn.
Rauðrófubuffin eru tilvallin með fersku grænu salati og gufusoðnu eða steiktu grænmeti, bragðbættu með ólífuolíu, balsamikediki og t.d. fersku basil. Einnig eru þau frábær í pítu- eða hamborgarabrauð með salati, osti, tómötum lauk og pítusósu. Buffin eru einnig góð sem meðlæti með fisk- og kjötréttum.
Hver pakki með 4 buffum vegur 250g.
Innihald: Bankabygg (43%), kartöflur, rauðrófur (23%) steinselja, grænmetiskraftur (vegan), jurtasalt, kóríander og svartur pipar. Rasp: Byggmjöl og sesamfræ.
Næringargildi í 100 g er u.þ.b.:
Orka 330kJ/78 kkal
Prótein 2 g
Kolvetni 15 g
Fita 1 g
- Back to products