Bygg m/rótargrænmeti
Hráefni:
- » 300 gr íslenskt bankabygg
- » 10 stk sveppir
- » ½ laukur
- » 1 dl rjómi
- » 1 msk smjör
- » 1 rófa
- » 6 gulrætur
- » Eftir þörfum olía vatn salt pipar lárviðarlauf
Aðferð
Bygg sett í pott ásamt lárviðarlaufi og saltað, soðið í uþb 40 mínútur og sigtað ef þarf. Sveppir skornir í fernt smátt ásamt lauknum sem saxast gróft. Sveppir og laukur svitað í smjöri og rjóma hellt yfir og soðið í 2-3 mín, blandað saman við byggið og smakkað til með salti og pipar. Rótargrænmeti skrælt og skorið í teninga og ristað á pönnu. Berið fram með fersku salat eða notið sem meðlæti með fiski eða kjötréttum.
- Back to products