Grænkálsbyggottó

keyboard_arrow_leftUppskriftir

Grænkálsbyggottó

Frábært og einfalt bygg sem passar með flestu

 

7,5 dl vatn 3 dl Perlubygg frá Móður Jörð 1 stór laukur 3 hvítlauksrif 3 grænkáls lauf 1-2 dl rjómi (eða jurtamjólk) 1 tsk salt 1,5 tsk broddkúmen Malaður svartur pipar Repjuolía til steikinga
Saxið laukinn og hvítlaukinn. Fjarlægið stilkinn af grænkálinu og skerið kálið í strimla. Sjóðið byggið í vatni í 20 mínútur, sigtið og leggið til hliðar. Steikið laukinn og hvítlaukinn í olíunni þar til gullið, bætið þá grænkálinu saman við. Leyfið grænkálinu að mýkjast aðeins í olíunni. Bætið þá bygginu saman við og blandið vel. Bætið við kryddinu og vökvanum og látið hitna vel á pönnunni. Smakkið til með salti og pipar og berið fram.  
Free shipping over £50.
Money back guarantee
IS